- Félag járniðnaðarmanna
- 14.06.2023
Niðurstöður aðalfundar 2023
Aðalfundur félagsins var haldinn þann 8.júní síðast liðin. Á fundinum voru lagðir fram reikningar félagsins til samþykktar og ein breyting var á stjórn en Pétur Hilmarsson lét af störfum og í hans stað kom Steinn Daníel Þrastarsson.
Umræða var um félagsgjaldið og hest það óbreytt. Farið var yfir styrki úr sjóðum félagsins og voru samþykktar hækkanir á tveim styrkjum, Heilsurækrarstyrkurinn hækkar úr 35.000kr í 50.000 kr og þá hækkar orlofsstyrkurinn úr 25.000 kr í 30.000 kr.
Undir liðnum önnur mál var meðal annars 80 ára afmæli félagsins sem verður á næsta ári og óskar stjórn eftir hugmyndum hvernig við viljium halda uppá þennan áfanga.