F J I . I S

Hleð

img Fyrir félagsmenn

Sjóðir & styrkir

Endurhæfing og lækningar

Sjúkraþjálfun, sjúkranudd, kírpópraktor. Vegna endurhæfingar og meðferðar hjá löggiltum aðila endurgreiðir sjóðurinn 4.000 kr. í hvert skipti allt að 24 sinnum á ári.
Viðtalsmeðferðir Vegna meðferðar hjá sérfræðingi með löggilt starfsleyfi, s.s. sálfræðingi, félagsráðgjafa, geðlækni eða geðhjúkrunarfræðingi. Miðað er við að meðferðaraðili falli ekki undir afsláttarkjör hjá Sjúkratryggingum eins og t.d. á við um geðlækna. Greitt er allt að 6.000 kr fyrir hvert skipti allt að 12 sinnum á ári.
Meðferð á heilsustofnun Sjóðurinn greiðir styrk vegna dvalar á viðurkenndri heilsutofnun. Styrkupphæð er að hámarki 4.000 kr. á dag í allt að 24 daga á hverjum 12 mánuðum. 
Tannlækningar Sjóðurinn endurgreiðir kostnað vegna tannlækninga að hámarki 60.000 einu sinni á 12 mánaða tímabili.
Ferðakostnaður vegna veikinda félagsmanns. Hafi félagsmaður fengið synjun um greiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands greiðir félagið kostnað skv. reglum Sjúkratrygginga Íslands. Með umsókn þarf að fylgja: Vottorð um nauðsynlega ferð, staðfestingu á komu til læknis, synjunarbréf frá SÍ. Farseðlar eða nótur vegna eldsneytis. Hámark tvær ferð á hverju 12 mánaða tímabili.